Getur þú verið til taks?
Með því að ljá okkur starfskrafta þína hjálpar þú okkur að spara peninga og leggja meira af mörkum til hjálpar- og þróunarstarfa. Sjálboðaliðar skipa stórt hlutverk í daglegu starfi okkar. Þú getur fengið nánari upplýsingar hjá Atla Hafliðasyni sem hefur umsjón með sjálfboðnu starfi. Hann er með netfangið atli@help.is og síma 862 2955.
Ef þú ert á skrá þá hringjum við í þig þegar eitthvað kemur upp hringjum við til þín og ef þú ert laus kemur þú og aðstoðar okkur við einhver tímabundin verk. Okkur er mikill akkur í að eiga sem flesta að.
Skráðu þig núna og sendu okkur nafn og síma með tölvupósti!


