Styrktaraðilar Hjálparstarfs kirkjunnar
Fastir styrktaraðilar styðja verkefni Hjálparstarfsins með reglulegu framlagi. Þau eru greidd með greiðslukorti eða gíróseðlum sem sendir eru út eftir því hve oft fólk kýs að greiða. Framlög geta verið allt frá 500 kr. í hvert skipti og eins oft á ári og styrktaraðili vill. Þó er lágmarksframlag á hvern gíróseðil 2000 kr. en greiðslur geta þá verið færri yfir árið þannig að heildarupphæð sé ekki meiri en fólk ræður við og vill gefa. Það er vegna þess að það er dýrara að senda út gíróseðla en að skuldfæra á greiðslukort.
Framlög fastra styrktarmanna renna öll til verkefna, þeirra sem brýnust eru hverju sinni. Þau nýtast best því þau eru regluleg og hægt er að gera ráð fyrir þeim til lengri tíma þótt hver og einn greiðandi sé ekki skuldbundinn fram í tímann. Nóg er að hringja og láta vita vilji styrktaraðili hætta við framlög af einhverjum ástæðum.
Hafðu samband við skrifstofuna í síma 528 4400, með tölvupósti help@help.is, fylltu út eyðublaðið hér fyrir neðan til að gerast fastur styrktarmaður. Þá færð þú fréttablaðið Margt smátt 3-4 sinnum á ári sem gefur upplýsingar um starfið.



