Reikningsnúmer:
0334-26-50886
kt. 450670-0499
Söfnunarsímar
907 2002
hjálp heima
907 2003
hjálp erlendis

 

viltukaupagjafabref.jpg
fridarljos.jpg
Viltu senda
minningarkort?

Minningarkort

Minningarkort Hjálparstarfs kirkjunnar hefur áletrunina „Samúðarkveðjur" og í þeim er sálmur sem þú getur lesið hér fyrir neðan. Um leið og þú tjáir hug þinn með korti frá okkur og heiðrar minningu vina og skyldmenna styrkir þú þá sem minna mega sín.

Hvernig?
Með því að smella hér getur þú keypt kort, fyllt út eyðublað með öllum upplýsingum sem fara í kortið. Við sendum svo kortið fyrir þig. Þú getur fengið sendan gíróseðil fyrir kortinu eða látið skuldfæra gjöf þína á greiðslukort. Þú getur einnig hringt til okkar í síma 528 4400, viljir þú það frekar, og við göngum frá málinu í gegnum síma. Lágmarksupphæð á hvert kort er 1.000 kr.

Staðlaður texti í minningarkortunum er svona:
Til minningar um Jón Jónsson hefur Hjálparstarfi kirkjunnar verið færð gjöf.
Með einlægum samúðarkveðjum, Birgir og Ásta.

Eigin texti:
Viljir þú orða kveðjuna á annan veg getur þú gert það. Á EYÐUBLAÐINU er reitur til þess.

Minningargjöfum beint til Hjálparstarfsins
Viljir þú vísa á Hjálparstarfið um minningargjafir vegna ættingja þinna er gott að benda vinum og vandamönnum á símanúmer stofnunarinnar 528 4400. Þú getur valið í hvaða verkefni gjafirnar fara. Við söfnum saman nöfnum gefenda á minningarskjal sem þú færð svo ahent.

Eyðublað til að senda minningarkort

Sálmur í minningarkortum:
Hann veitir kraft hinum þreytta og gnógan styrk hinum þróttlausa. (Jes.40.29.)

Það húmar, nóttin hljóð og köld
í hjarta þínu tekur völd,
þar fölnar allt við frostið kalt,
-en mest er miskunn Guðs.

Er frostið býður faðminn sinn,
þér finnst þú stundum, vinur minn,
sem veikur reyr, er megni´ei meir,
-en mest er miskunn Guðs.

En vit þú það, sem þreyttur er,
og þú sem djúpur harmur sker,
þótt hrynji tár og svíði sár,
að mest er miskunn Guðs.

Og syng þú hverja sorgarstund
þann söng um ást, þótt blæði und,
og allt sé misst, þá áttu Krist.
Því mest er miskunn Guðs.

Sigurður Einarsson