Söfnunarsímar
907 2002
hjálp heima
907 2003
hjálp erlendis
viltukaupagjafabref.jpg
fridarljos.jpg
Viltu senda
minningarkort?
changemaker.jpg

Vatn og framfærsla í Malaví

Hjálparstarf kirkjunnar hefur í nokkur ár starfað í Malaví með innlendum ábyrgðar- og framkvæmdaaðilum, Evangelical Lutheran Development Service, að stuðningi við sjálfsþurftarbændur.  Myndasería um ferð Hk til Malaví febrúar 2009.

Í Malaví snýst þróunarverkefnið um vatnsöflun í Chikwawa-héraði. Það er eitt það hrjóstrugasta í landinu, heitast og þurrast. Verkefninuer  ætlað að bæta lífskjör þeirra fátækustu í þessu samfélagi. Unnið er í 37 þorpum og eru fátækustu fjölskyldurnar teknar inn í verkefnið. Þær eru valdar í samvinnu við opinbert þorpsráð sem er skipað samkvæmt stefnu stjórnvalda og á að vera samhæfingaraðili í þróunarmálum hvers þorps eða svæðis. Þeir ganga fyrir sem rækta minna en einn hektara lands, hafa orðið illa úti vegna umhverfishamfara eða sjúkdóma s.s. alnæmis . Er þá tekið sérstakt tillit til þess ef einstæðar mæður standa fyrir heimilinu, munaðarlaus börn eða alnæmissjúkir.


Markmiðið að afla vatns og nýta á fjölbreytta vegu


Markmið eru fjögur: Að efla þekkingu og færni fólks til að takast á við framfaraverkefni: Með því að vinna að eftirfarandi verkefnum og með námskeiðum og kynningarheimsóknum. Að kenna fólki að nýta vatn til að tryggja betur fæðuöryggi: Með því að rækta þurrkaþolnari og fjölbreyttari tegundir, nota vatn í áveitur og tað sem áburð, halda skepnur og gera fiskiræktartjarnir. Að auka aðgengi að vatni og auka hreinlæti sérstaklega fyrir heimili alnæmissjúkra og munaðarlausra barna: Með því að grafa brunna og safna vatni t.d. af húsþökum, með því að reisa kamra og handþvottaaðstöðu og með fræðslu og loks að vinna að því að binda rigningarvatn betur í jarðvegi með gróðursetningu og öðrum aðgerðum þannig að vatnsból endurnýist betur.

Í gegnum verkefnið eru ræktaðir matjurtargarðar, brunnar grafnir og kamrar reistir með handþvottaaðstöðu. Hundruðum þúsunda plantna hefur verið plantað og vatnstönkum komið upp. Fjöldi námskeiða til fræðslu og leiðtogaþjálfunar hefur verið haldinn til að auka samstarf og til kynningar á því sem hefur verið gert annars staðar og til hvatningar. Íbúar leggja fram alla vinnu utan þeirrar sem krefst tæknivinnu eins og þegar bora þarf brunna í stað þess að handgrafa vegna þess hvernig jarðvegur er á þeim stað.
 

Guðrún Haraldsdóttir, gerði óháða úttekt á verkefninu sem má sjá hér.