Reikningsnúmer:
0334-26-50886
kt. 450670-0499
Söfnunarsímar
907 2002
hjálp heima
907 2003
hjálp erlendis

 

viltukaupagjafabref.jpg
fridarljos.jpg
Viltu senda
minningarkort?
Fair Trade

Hvað er Fairtrade?

Fair Trade hugtakið er í raun mjög einfalt og það er að borga bændum og framleiðendum í þriðja heim sanngjarnt verð fyrir sína afurði, það er ekkert flóknara en það. Þau rækta kaffið og við drekkum það með góðri samvisku.

Fairtrade virkar þannig að smábændur og smáframleiðendur í fátækum löndum stofna með sér samvinnufélag. Verðið fyrir vöru þeirra er fyrirfram ákveðið og allt að 60% af áætlaðri uppskeru er greitt fyrirfram. Fairtrade-samningur gefur smábændum og smáframleiðendum beinan aðgang að vestrænum mörkuðum og útilokar milliliði sem hafa af þeim hagnaðinn. Öll samvinnufélögin sem ídag koma frá 58 löndum tilheyra Fairtrade Labelling Organization eða FLO sem er alþjóðaeftirlitsskrifstofa. Samvinnufélögin þurfa að greiða fyrir þá þjónustu sem alþjóðarsamtökin veitir þeim, tildæmis að þróa viðskiptaáætlun og markaðsáætlun. Markmiðið er að samvinnufélögin og alþjóðarsamtökin eiga að vera sjálfbær.

Þegar þú kaupir Fairtrade-merktar vörur ertu með í alþjóðlegri baráttu fyrir sanngjörnum launum til bænda og framleiðenda fyrir vöru þeirra, þú ert með í að draga úr barnaþrælkun, þú styður við lífræna ræktun, styrkir rétt fátæks fólks til félagafrelsis og ýtir undir lýðræði.

Ávinningur fyrir allt samfélagið

Fairtrade-samningar fela einnig í sér að hluti kaupverðs fer í sameiginlegan sjóð til umbóta fyrir samfélagið. Meðlimirnir sjálfir ákveða lýðræðislega hvernig á að nota það fjármagn, með þeirri reglu að það nýtist samfélaginu sem heild. Sykurframleiðendur í Malaví hafa notað sjóðinn til þess að grafa vatnsbrunna svo að konur og börn þurfi ekki að sækja vatn langar leiðir. Kaffibændasamtök í Kolumbíu hafa stofnað heilsugæslu og opnað lyfjabúð. Í fjöllum Guatemala hafa indíánar í samvinnufélaginu La Voz í fyrsta sinn getað sent börn sín í menntaskóla. Dæmin um hvað hefur verið gert eru eins mörg og framleiðendurnir. Enn og aftur er markmiðið sjálfbær þróun, samfélög sem efla sig sjálf og þurfa ekki að vera háð erlendri þróunaraðstoð. Sérfræðingar segja að hægt sé að draga úr fátækt 130 miljóna manna í Asíu, Afríku og Suður-Ameríku með því að auka hlutdeild þeirra í heimsviðskiptum um aðeins 1%.

1,4 milljónir Fair Trade-framleiðenda

Framleiðendur sem rækta og vinna samkvæmt Fair Trade-stöðlum eru nú um 1,4 milljónir talsins og vestræn fyrirtæki sem í gegnum langtímasamninga skipta við Fair Trade-framleiðendur eru nú orðin um 2000.

Sala á Fair Trade vörum jókst um 40% á árinu 2006 miðað við árið 2005. Heildarvelta Fair Trade-merktra vara ár 2006 var um 1,6 milljarður evra.

Í Englandi er 20% af öllu kaffi sem þar selst Fairtrade-merkt. Í Sviss er 47% af banönum, 28% af hveiti og 9% af sykri sem selt er Fairtrade-merkt. Í Hollandi þekkja og kaupa 90% manna Fairtrade-merktar vörur. Meira en 55.000 verslanir í Evrópu selja Fairtrade-merktar vörur.

Af hverju ættum við að styðja við Fair Trade

Við búum í heimi þar sem risafyrirtæki nýta stöðu sína til að kaupa sem ódýrast frá framleiðendum – framleiðendum sem eiga oft engan annan kost en að selja á því verði sem fyrirtækin bjóða. Það verð getur jafnvel verið undir framleiðslukostnaði. Slíkt er fjarri því að vera einsdæmi. Af 40 stærstu efnahagskerfum heimsins eru 26 þeirra fyrirtæki. 500 stærstu fyrirtæki heims stjórna 70% af öllum viðskiptum sem fram fara. Í slíkri samkeppni má sín lítils kaffibóndi í Kólumbíu, Kenýa eða Indónesíu sem með uppskerunni sér fyrir fjölskyldu sinni.

Einnig bætist inn í þetta dæmi að tollar, vörugjöld og landbúnaða- og útflutningsstyrkir sem vestræn lönd veita sínum framleiðendum skekkja samkeppni og gera enn erfiðara fyrir framleiðendur í þriðja heim að selja sínar vörur á vestrænum mörkuðum. Fair Trade samtökin vinna einnig fyrir hugtakinu “Make Trade Fair” sem er áframhald á Fairtrade viðskiptum. Markmiðið er að minnka óréttlæti á heimsmarkaði varðandi landbúnaðarstyrki og slíkt og gefa öllum sama tækifæri að framleiða og selja sínar vörur.

Alþjóðavinnumálastofnunin áætlar að um 126 milljónir barna á aldrinum 5 til 15 ára vinni við hættuleg störf og þar að auki ólöglegar aðstæður. Einnig er áætlað að meira en helmingur þeirra, um 73 milljónir séu yngri en 10 ára. Starfsviðið er aðallega landbúnaður þar sem framleitt er kaffi, kakó, ávextir, sykur, bómull og áfram má lengi telja. Fílabeinsströndin framleiðir helming af öllu kakói sem er notað í súkkulaði í heiminum. Áætlað er að allt að 200.000 börn yngri en 15 ára vinni við kakórækt við mjög slæmar aðstæður, mörg þeirra sem þrælar sem hafa verið seld eða þeim rænt og flutt þangað frá nágrannalöndum. Einnig er vefnaðar- og sportvöruiðnaðurinn ákafur þátttakandi þegar um barnavinnu er að ræða.

Fair trade virkar ef þú kaupir rétt

Fair Trade er farvegur til þess að ráðast gegn fátækt í heiminum. Þú og ég getum breytt heiminum og það byrjar með því að velja Fair Trade-vottaðar vörur úti í búð. Við vitum það öll að ef við kaupum kaffi eða handklæði á nokkrar krónur, er næstum því ómögulegt að framleiðandi geti framfleytt sér á slíkum viðskiptum, sérstaklega þegar við drögum álagningu verslunarinnar frá, flutningskostnað, skatta og gjöld. Með því að kaupa Fair Trade-vottaðar vörur getum við verið 100% viss um að barn hefur ekki framleitt vöruna og þar að auki tryggjum við að framleiðendur og bændur fái sanngjörn laun fyrir vinnu sína og vörur.

ÞÚ getur breytt heiminum

Í dag er hægt að kaupa nánast allt með Fair Trade-vottun. Á Íslandi erum við ennþá langt á eftir öðrum vestrænum löndum varðandi vöruúrval og þekkingu almennings á því hvað það þýði að kaupa inn með sanngirni að leiðarljósi. Þetta þarf að breytast. En þótt við eigum langt í land þá fást Fair Trade-vörur nú þegar víða í búðum s.s. kaffi, te, sykur, súkkulaði, handklæði, föt og svo framvegis.

Ekki góðgerðastarf heldur sanngirni

Að lokum erum það við, neytendur, sem höfum ábyrgðina og valdið í okkar höndum. Það erum við sem borðum súkkulaði, drekkum kaffi og þurrkum okkur með handklæðum. Hugsaðu þig um næst hvaðan þetta allt kemur, hver ræktaði kaffið þitt og saumaði sængurfötin þín? Ert þú sanngjarn í viðskiptum? Ef ekki, þá getur þú breytt því...

Spurningar og fræðsla

Ef þú hefur fleiri spurningar eða ef til vill ef þú villt panta kynningu um Fair Trade þá hafðu samband við Anna Ólafsdóttir anna@help.is.

Verslanir sem selja Fair Trade vörur á Íslandi
(Við biðjums velvirðingar á ef einhvern vantar)

www.fairtradebudin.is
www.yggdrasill.is
www.madurlifandi.is
www.noatun.is

www.kronan.is
www.bonus.is
www.hagkaup.is

www.rumfatalagerinn.is

Ótal margar vefverslanir út um allan heim bjóða einnig upp á mikið úrval af Fair Trade vörum.

Fair Trade - The Story
Mynd frá Transfair í Bandaríkjunum.
Segir þér allt um Fair Trade í stuttu máli.

 

Sækja bækling um Fair Trade:
Fairtrade.pdf (.pdf 212 K) Sækja skjal