Söfnunarsímar
907 2002
hjálp heima
907 2003
hjálp erlendis
hnappur-fridarljos-168.gif
Change Maker
Viltu senda
minningarkort?

Auðvitað getum við breytt heiminum

Changemaker eða Breytendur á íslensku er ungliðahreyfing, margir sjálfstæðir hópar sem byggja á eigin hugmyndum og frumkvæði til að breyta heiminum til hins betra. Changemaker á upphaf sitt í Noregi en hefur breiðst út til Svíþjóðar, Finnlands, Hollands og nú seinast til Íslands. Sjá changemaker.is.

Markmið Changemaker er að vinna gegn óréttlæti gagnvart þróunarlöndum. Bakhjarlar Changemaker-hreyfingarinnar eru Hjálparstarf kirkjunnar, fræðsludeild þjóðkirkjunnar og Æskulýðssamband kirkjunnar í Reykjavík.

Svona birtist óréttlætið

Að mati Changemaker birtist óréttlæti í heiminum einkum á fimm vegu: Í viðskiptum milli Vesturlanda og þróunarlanda, í óréttmætum skuldum þriðjaheimsins við Vesturlönd, í veðurfarsbreytingum sem Vesturlönd bera ábyrð á en bitna á heiminum í heild, í alnæmisvánni og síðast en ekki í síst þar sem ófriður ríkir en eins og kunnugt er bitnar stríð oft harðast á þeim sem síst skildi.

Hugsa á heimsvísu en aðhafast heima

Changemaker vinnur eftir mjög ákveðnu vinnusiðferði til að ná fram markmiðum sínum.

Til að ná árangri þarf að vinna með fólki en ekki á móti því. Markmið Changemaker er að fá fólk til liðs við málstað sinn og hvetja það til að breyta rétt, ,,make a change", en ekki að mála fólk út í horn eða úthúða því. Til þess að vinna gegn óréttlæti þurfum við að bera kennsl á hvernig við erum þátttakendur í kerfi sem er óréttlátt og hvað við getum gert, til að gera það réttlátara. Við þurfum s.s. annars vegar upplýsingar og hins vegar aðgerðir eða ,,alternative action". Án réttra upplýsinga missa aðgerðirnar marks, en án aðgerða eru upplýsingar gagnslausar. Lykillinn er að hugsa á heimsvísu en aðhafast heima fyrir, ,, think globaly, act localy".

Changemaker og norskir vopnaframleiðendur

Svo dæmi séu tekin af starfi Changemaker hafa hinir ýmsu Changemaker-hópar á árangursríkan hátt unnið að útbreiðslu á svokölluðum fair trade-vörum. Changemaker-krakkar hafa t.d. fengið skólayfirvöld í sínum heimahéraði til að skipta yfir í fair trade-kaffi eða hvatt verslanir til að bjóða upp á eða auka framboð á fair trade-vörum, einnig hefur Changemaker orðið töluvert ágengt í Noregi varðandi afnám óréttmætra skulda, eða í það minnsta náð viðurkenningu á því að vissar skuldir séu óréttmætar. Eins og stendur snýr ein aðalherferð Changemaker í Noregi að vopnaframleiðendum þar í landi því komið hefur í ljós að norskar byssukúlur eru að koma fram í t.d. Kongó. Changemaker fer fram á að þeir merki vörur sínar kaupandanum til að koma í veg fyrir að kaupandinn geti áframselt vopn eða skotfæri sem framleidd eru í Noregi til stríðandi fylkinga án vitundar norskra yfirvalda.

Nú framleiða Íslendingar hvorki vopn né hafa staðið fyrir lánveitingum til þriðjaheimslanda og því ómögulegt að yfirfæra allar herferðir Changemaker í Noregi yfir á íslenskar aðstæður. Nokkuð sem hittir þó beint í mark er fair trade eða sanngjörn visðskipti. Er sanngjarnt að fyrir banana sem við borgum 40 krónur fyrir, fái bóndinn aðeins 2? Er eðlilegt að kaffibóndinn sem stritar við að rækta kaffibaunir fyrir okkur þéni ekki nóg til að framfleyta fjölskyldunni sinni? Nei, að sjálfsögðu er það hvorki sanngjarnt né eðlilegt. Boðskapur Changemaker er að kaffi sem við vitum að bóndinn fékk sanngjarnt verð fyrir bragðast einfaldlega betur!

Það er svo margt sem við getum gert ef við aðeins gefum okkur tíma til að hugsa okkur um. Oft fallast okkur hendur, en hver segir að við getum ekki breytt heiminum?! Auðvitað getum við breytt heiminum!!

Þar til frekari upplýsingar verða komnar á vefinn, bestu kveðjur!

Þorsteinn Valdimarsson (663 9939) er ábyrgðarmaður Changemaker á Íslandi