Söfnunarsímar
907 2002
hjálp heima
907 2003
hjálp erlendis
hnappur-fridarljos-168.gif
Change Maker
Viltu senda
minningarkort?
Breyttur opnunartími matarúthlutunar 26.02.2010

Frá og með mars er tekinn upp nýr opnunartími fyrir matarúthlutun sem er á miðvikudögum kl. 12-17. Lengdur opnunartími á miðvikudögum gefur fleirum tækifæri á að koma. Félagsráðgjafar Hjálparstarfsins sinna sérafgreiðslum á fimmtudögum vegna þeirra sem vegna fötlunar eða af öðrum sérstökum ástæðum geta ekki komið á miðvikudögum. Allir sem leita aðstoðar hjá Hjálparstarfi kirkjunnar þurfa að koma með gögn um mánaðarlegar tekjur og gjöld. Þeir sem búa úti á landi koma með þessi gögn til síns prests. Tilgangurinn er að fara vel í gegnum stöðu hvers og eins og aðstoða betur þá sem verst eru staddir. Næsta matarúthlutun er miðvikudaginn 3. mars kl. 12-17.

Til baka...