Nýtt Fréttabréf Hjálparstarfsins er komið út. Í blaðinu segjum við frá starfinu hér heima og á verkefnasvæðum erlendis. Í blaðinu er meðal annars fjallað jólaaðstoð Hjálparstarfsins en sjaldan hafa eins margir leitað til okkar og nú. Ástæðan er einföld og ávallt sú sama. Þau sem minnst hafa handa á milli þurfa aðstoð við að útvega […]
Vinir Hjálparstarfs kirkjunnar koma næst saman í safnaðarheimili Grensáskirkju mánudaginn 25. mars kl. 12:00 og snæða saman. Öll sem áhuga hafa á starfi Hjálparstarfs kirkjunnar og vilja leggja starfinu lið eru hjartanlega velkomin. Skráning Tilkynna þarf þátttöku á netfangið help@help.is eða í síma 528 4400 fyrir kl. 9:00 fimmtudaginn 21. mars. Verð fyrir máltíðina er 3.000 kr. […]
Hjálparstarf kirkjunnar styður fjölskyldur sem ekki geta farið í sumarfrí á eigin vegum sökum fátæktar. Umsóknarfrestur er til 5. maí 2024. Umsóknareyðublað má nálgast hjá félagsráðgjöfum Hjálparstarfsins. Öll sömu skilyrði gilda og um aðra efnislega aðstoð Hjálparstarfsins.
Mannúðarsamtök á Íslandi kalla eindregið eftir sterkari viðbrögðum íslenskra stjórnvalda vegna átakanna á Gasa. Eftirfarandi er ákall framkvæmdastjóra UNICEF á Íslandi, Hjálparstarfs kirkjunnar, ABC barnahjálpar, Rauða kross Íslands, UN Women Ísland og Barnaheilla – Save the Children á Íslandi. Við sem veitum mannúðarsamtökum á Íslandi forystu köllum eftir sterkari viðbrögðum íslenskra stjórnvalda vegna átakanna á […]